Uppsteypa fasteigna

Lindar sérhæfir sig í uppsteypu mannvirkja og tekur að sér verkefni af öllum stærðum, frá minni framkvæmdum yfir í flóknar og umfangsmiklar byggingar.

Uppsteypa fasteigna

Frá stofnun fyrirtækisins höfum við unnið markvisst með steypuvinnu og járnbindingu og tekið þátt í fjölbreyttum verkefnum víðsvegar um landið.

Við fylgjum ströngustu gæðastöðlum í öllum verkum og leggjum áherslu á nákvæmni, öryggi og fagleg vinnubrögð. Hvort sem um er að ræða hefðbundnar nýbyggingar eða sérhæfðar lausnir í krefjandi landslagi og aðstæðum, þá endurspegla verkefnin okkar metnað og fagmennsku.

Samanlögð reynsla starfsmanna Lindar í uppsteypu er yfir 100 ár. Sú þekking skilar sér í öflugri framkvæmdargetu, góðu skipulagi, skilvirkni á verkstað og traustum samskiptum við verkkaupa og samstarfsaðila.

Við bjóðum meðal annars upp á

  • 01Uppsteypu á einbýlishúsum, fjölbýlishúsum og atvinnuhúsnæði
  • 02Sökkla, veggi, plötur og aðrar undirstöður
  • 03Járnbindingu og formvinnu
  • 04Náið samstarf við hönnuði og verkfræðinga á öllum stigum framkvæmdar
Mót og járnabinding á byggingarstað